SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er 10. október 2017, kl. 16:00.
Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2017 – 31. október 2018. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.
Hér má nálgast ítarlegri úthlutunarreglur.
Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís
Nánari upplýsingar gefur Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5820 eða með tölvupósti: jon.svanur.johannsson(hja)rannis.is
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.