Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

27.8.2019

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er til 8. október 2019, kl. 16:00.

  • Fólk á fyrirlsetri

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara veitir styrki fyrir:

A. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 kr. á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum fyrir að hámarki 80.000 kr.

B. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 kr. á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið fyrir að hámarki 80.000 kr.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er frá 1. nóvember 2019 til 31. október 2020. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og er vel unnin umsókn skilyrði fyrir styrkveitingu.

Hér má nálgast ítarlegri úthlutunarreglur.

Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica