Auglýst eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki

24.8.2021

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF) auglýsir eftir umsóknum um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki. Umsóknarfrestur er til 5. október 2021, kl. 15:00.

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara veitir styrki fyrir:

a. Skólameistara framhaldsskóla, sem tilnefna einn til tvo kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 80.000 krónur.

b. Faggreinafélög, sem tilnefna einn til tvo stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrkupphæð er 250.000 krónur á þátttakanda og skulu þátttakendur sækja sama námskeið. Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 80.000 krónur.

Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. nóvember 2021 – október 2022. Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.

Ítarlegri úthlutunarreglur

Sótt er um rafrænt í umsóknakerfi Rannís

Nánari upplýsingar gefur Skúli Leifsson, verkefnastjóri innlendra menntasjóða, í síma 515-5843 eða með tölvupósti í skuli.leifsson(hja)rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica