Auglýst eftir umsóknum um námsorlof kennara, námsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla

7.9.2018

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2019-2020. Umsóknir þurfa að berast Rannís eigi síðar en þriðjudaginn 2. október næstkomandi, kl. 16:00.

Um námsorlof geta sótt framhalds­skólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skóla­meistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknakerfi Rannís.

Eru umsækjendur jafnframt hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og algengar spurningar.

Nánari upplýsingar gefur Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri innlendra mennta­sjóða, í síma 515-5820 eða með tölvupósti í jon.svanur.johannsson(hja)rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica