Auglýst eftir umsóknum í Markáætlun í tungu og tækni

21.9.2018

Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Markáætlun í tungu og tækni fyrir styrkárið 2018-2019.Umsóknarfrestur er 9. nóvember 2018 kl. 16:00.

Markáætlun í tungu og tækni er opinn samkeppnissjóður sem starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir ( nr. 3/2003 með áorðnum breytingum ). Áherslur áætlunarinnar eru ákvarðaðar af Vísinda- og tækniráði, en hún er fjármögnuð af mennta- og menningar­málaráðuneyti. Rannís er umsýsluaðili sjóðsins. Markáætlun styður við verkefni í máltækni í því skyni að gera íslensku gjaldgenga í stafrænni upplýsingatækni og stuðla að notkun hennar á þeim vettvangi. Hlutverk Markáætlunarinnar er því annars vegar að vernda og efla íslenska tungu, og hins vegar að auðvelda nýtingu nýrrar samskiptatækni í íslensku samfélagi, til hagsbótar almenningi, stofnunum og fyrirtækjum.

Markáætlun veitir styrki samkvæmt þeim áherslum sem eru skilgreindar fyrir sjóðinn, og á grundvelli faglegs mats á gæðum verkefna, hversu víðtækt verkefnið er, þörf á afurðum verkefnisins, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Máltæknisjóður og Markáætlun í tungu og tækni eru keyrð sameiginlega árið 2018.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Markáætlun í tungu og tækni fyrir styrkárið 2018-2019. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 9. nóvember 2018.

Umsækjendur eru beðnir að kynna sér vel reglur Markáætlunar í tungu og tækni áður en hafist er handa við gerð umsóknar. Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís .

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica