Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna

16.12.2019

Hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Umsóknarfrestur er til 4. febrúar 2020. 

Forgangsatriði Þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2020 eru þrjú:

  1. Námsgögn er styðja við aðlögun og íslenskunám innflytjenda.
  2. Námsgögn sem miða að markvissri eflingu orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum. Sérstaklega er horft til íslensku, náttúru- og stærðfræði. Námsgögnin þurfa að höfða til áhugahvatar hópa sem standa höllum fæti.
  3. Námsefni sem styður við félagsfærni nemenda með áherslu á þátttöku í samfélagi, sjálfsmynd og líðan.

Við úthlutun verður tekið tillit til hvort námsefnið styðji við grunnþætti menntunar og hversu aðgengilegt það verður nemendum.

Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á. Hægt verður að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2,0 milljónir króna, en einnig hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4,0 milljónir króna. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að uppfylltum settum skilyrðum.

Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 4. febrúar 2020, kl. 16.00.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Lesa nánari upplýsingar um Þróunarsjóð námsgagna. Á síðu sjóðsins er einnig aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi Rannís.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica