Auglýst er eftir umsóknum í Bókasafnasjóð

16.8.2021

Bókasafnasjóður styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafns- og upplýsingamála. Sjóðnum er heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan.

Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög og reglur bókasafnasjóðs ein eða með öðrum bókasöfnum eða með öðrum aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu geta sótt um í sjóðinn.

Umsóknarfrestur er til 15. september kl. 15:00.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga: bokasafnasjodur@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica