Auglýst eftir umsóknum í tvíhliða norðurslóðaáætlun Íslands og Noregs

20.11.2019

Áætlunin Arctic Research and Studies 2019-2020 veitir sóknarstyrki til að styrkja samstarf á milli Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar 2020, kl. 16:00.

  • Arctic_nov2019

Sóknarstyrkir eru veittir vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði. Styrkir nema að hámarki 25.000 evrum, þar af að hámarki 10.000 evrur í ferðakostnað, og er styrkhæft tímabil í 17 mánuði, frá 7. febrúar 2020 til 6. júlí 2021

Skilyrði er að a.m.k. einn íslenskur og einn norskur lögaðili (háskóli, rannsóknastofnun eða aðrar skipulagseiningar) komi að umsókn.

Áætlunin byggir á samkomulagi um samstarf á sviði norðurslóðafræða á milli Íslands og Noregs. Utanríkisráðuneyti Noregs og Íslands fjármagna áætlunina en Rannís hefur umsjón með henni í samvinnu við Norwegian Agency for International Cooperation and Quality Enhancement in Higher Education (Diku) í Noregi.

Nánari upplýsingar um norðurslóðafræði og hvernig sótt er um: Arctic studies  









Þetta vefsvæði byggir á Eplica