Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Jules Vernes, vísinda- og tæknisamstarf Frakklands og Íslands

2.6.2017

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðila á grundvelli Jules Verne samstarfs­samningsins. Umsóknarfrestur er 29. september 2017.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins.

Umsóknarfrestur er 29. september 2017. Svör við umsóknum og niðurstöður vegna styrkveitingar verða kynntar eigi síðar en í lok desember 2017.

Veittir eru styrkir að upphæð 650.000 kr. sem eru ætlaðir til að greiða ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2018-2019.

Tilgangurinn með þessu samstarfi er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.

Vísindamenn á öllum sviðum grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk.

Stofnanir sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn hver fyrir sig umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón í hvoru landi fyrir sig. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica