Nordplus auglýsir eftir umsóknum

12.1.2019

Opið er fyrir umsóknir um styrki í Nordplus áætluninni. Áhersluatriði áætlunarinnar fyrir 2019 eru stafræn hæfni og gervigreind. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2019.

  • Photo-for-news-article-on-Call-2019_Nordplus

Hægt er að sækja um styrki til mannaskipta- og samstarfsverkefna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi (Nordplus Junior), á háskólastigi (Nordplus Higher Education), í fullorðinsfræðslu (Nordplus Voksen), til norrænna tungumála (Nordplus Nordens Sprog) og í þveráætlun Nordplus (Nordplus Horisontal)

Áhersluatriði áætlunarinnar fyrir 2019 eru stafræn hæfni og forritunarleg hugsun. Vakin er athygli á því að í þetta sinn hefur 400.000 evrum verið bætt við Nordplus Junior. 

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2019.

Nánari upplýsingar má finna á Nordplusonline.org. Þar er að finna tengla á Espresso-umsóknarkerfið og Nordplus handbókina fyrir 2019.  

Ef einhverjar spurningar vakna eru umsækjendur hvattir til að hafa samband við:









Þetta vefsvæði byggir á Eplica