Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna

4.2.2016

Umsóknarfrestur 10. mars 2016, kl. 16:00. Hlutverk  þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

Forgangsatriði þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2016 er nýting stafrænnar tækni til að efla lestur og lesskilning, sem og nýsköpun í list- og tæknigreinum.

Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.

Opnað verður fyrir umsóknir 8. febrúar og er hægt að skila umsókn til fimmtudagsins 10. mars 2016 kl. 16.00.

Umsókn skal skilað á rafrænu formi.  Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica