BlueBio ERA-NET auglýsir eftir umsóknum

20.12.2018

Um er að ræða samstarfsnet 16 Evrópuþjóða til að efla samvinnu og ýta undir rannsóknir og nýsköpun á bláa lífhagkerfinu og er Ísland aðili að netinu í gegnum Rannís. 

  • BlueBio-Shutterstock-Id.-111107980

ERA-NET Cofund Blue Bioeconomy – Unlocking the Potential of Aquatic Bioresources (BlueBio)  er samstarfsnet 16 Evrópuþjóða til að efla samvinnu og ýta undir rannsóknir og nýsköpun á bláa lífhagkerfinu og er Ísland aðili að netinu í gegnum Rannís. 

Netið auglýsir eftir forumsóknum á eftirfarandi áherslusviðum:

  • Priority area 1: Exploring new bio-resources
  • Priority area 2: Exploring improvements in fisheries and aquaculture
  • Priority area 3: Exploring synergies across sectors
  • Priority area 4: Exploring Biotechnology and ICT

Umsóknaferlið er tveggja þrepa. Í fyrra þrepi er send inn forumsókn. Þær umsóknir sem standast mat á fyrsta þrepi fá boð um að senda inn umsókn á seinna þrepi.

Frestur til að skila inn forumsókn er til 17. mars 2019.

Nánari upplýsingar má má finna á BlueBio.eu.

Styrkur til íslenskra aðila í samþykktum verkefnum eru fjármagnaður af Tækniþróunarsjóði.

Frekari upplýsingar um kallið veita Lýður Skúli Erlendsson og Sigurður Björnsson hjá Rannís.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica