CHANSE: Styrkir til rannsókna á umbreytingum samfélags og menningar á stafrænum tímum

4.2.2021

CHANSE, áætlun um samvinnu hug- og félagsvísinda á vegum Horizon Europe, styrkir rannsóknir á samfélagsbreytingum og menningarþróun á stafrænum tímum, með heildarfjármagn upp á 36 milljónir evra.

CHANSE er stofnað í samstarfi rannsóknanetanna HERA og Norface. CHANSE mun styðja nýstárlegar rannsóknir á virkni, merkingu og afleiðingum umbreytinga og nýjunga í okkar stafræna samtíma. Markmiðið er að öðlast betri skilning á því hvernig stafrænar nýjungar leiða til félagslegra og menningarlegra breytinga, en jafnframt hvernig samfélag og menning hafa áhrif á stafræna þróun. Þótt samanburður eða rannsóknir á öðrum svæðum séu ekki útilokuð, verður hver umsókn að sýna fram á sterka, evrópska vídd, þ.e. skoða þær umbreytingar sem eiga sér stað eða hafa áhrif á Evrópu, í heild eða á einstök svæði, borgir, samfélög, o.s.frv.

Yfirskrift áætlunarinnar er: Umbreytingar: Þróun samfélags og menningar á stafrænum tímum (Transformations: Social and Cultural Dynamics in the Digital Age). Boðið verður upp á tvær megin leiðir: Menningarlegar umbreytingar á stafrænum tímum (Cultural Transformations in the Digital Age), og Stafræn þróun og samfélagslegar umbreytingar (Digitalisation and Social Transformation)

Nánari upplýsingar og lýsing

Auglýsing um umsóknir og tímalína

  • Opinber auglýsing um umsóknir er nú aðgengileg.
  • Skilafrestur grunnumsókna (outline proposals): 7. maí 2021, kl. 14.00 CET
  • Skilafrestur fullra umsókna (samkvæmt boði): 7. desember 2021, kl. 14.00 CET
  • Niðurstaða: maí / júní 2022
  • Verkefni hefjast í fyrsta lagi: september / október 2022

Vefnámskeið - upptaka og kynningar

Vefnámskeið fyrir áhugasama umsækjendur var haldið 15. mars sl. af miðstöð CHANSE í Póllandi (National Science Centre). Kynningar:

  • TOPIC I. Cultural Transformations in the Digital Age – Wojciech Sowa
  • TOPIC 2. Digitalisation and Social Transformation – Jonas Radl
  • Information about the call – Malwina Gębalska

Slóð á upptöku on kynningar: https://chanse.org/information-session-for-applicants/

Þátttökulönd

Auk Íslands taka eftirfarandi lönd þátt: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Króatía, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Þýskaland, Ungverjaland, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Noregur, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, og Bretland.

CHANSE er stýrt af National Science Centre í Póllandi, en landskrifstofa á Íslandi er Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís .

Verkefni, þátttökuskilyrði og styrkupphæð

Fyrir íslenska þátttakendur gilda þau skilyrði sem eiga við um Rannsóknasjóð.

Verkefni skulu samanstanda af a.m.k. fjórum aðalrannsakendum frá fjórum mismunandi löndum. Þátttökuskilyrði eru ákvörðuð af hverju landi fyrir sig.

Verkefni geta varað í 24-36 mánuði. Þótt ekki sé þak á heildarstyrknum er mælt með 1,5 milljónum evra fyrir eitt CHANSE verkefni. Styrkur til íslenskra þátttakenda samsvarar verkefnisstyrk í Rannsóknasjóði, þ.e. 45 milljónir kr. fyrir 36 mánuði.

Leit að samstarfsaðilum

Til að auðvelda myndun samstarfshópa býður CHANSE upp á leitarsíðu þar sem áhugasamir geta skráð sig og leitað að öðrum. Þó nokkrar rannsóknastofnanir hafa þegar skrá sig til leiks - Rannís hvetur áhugasama að gera slíkt hið sama við fyrsta tækifæri.

Nánari upplýsingar

CHANSE_logo_slogan_color









Þetta vefsvæði byggir á Eplica