Curio hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019

22.10.2019

Fyrirtækið Curio hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í gær. Elliði Hreinsson framkvæmdastjóri Curio, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur,  nýsköpunarráðherra. Nýsköpunarþingið var haldið á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni Sjálfbærni til framtíðar.

  • Curio-nyskopunarverdlaun-2019

Curio er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fiskvinnsluvéla sem auka nýtingu og skila betri afurð í vinnslu á bolfiski í afhausun, flökun og roðflettingu, ásamt því að hafa öryggismál og þrif að leiðarljósi. 

Þróunarstarf félagsins hefur skilað sér í nýjum og áhugaverðum vinnsluvélum, sem hafa skilað félaginu mikilli veltuaukningu á undanförnum árum. Síðari ár hefur félagið lagt sífellt meiri áherslu á þróunarstarf og eru starfsmenn félagsins að vinna að þróun á nýrri vélalínu fyrir lax og bleikju. Prófanir eru þegar hafnar og lofa mjög góðu. 

Í rökstuðningi dómnefndar segir: Curio hefur leitt öflugt þróunarstarf sem snýr að vinnslu sjávarafurða. Félagið var framan af ekki áberandi í nýsköpunarsamfélaginu en þróunarstarf félagsins hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Félagið hlaut m.a. árið 2018 tveggja milljón evra styrk í nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins innan Horizon 2020 og styrk frá Tækniþróunarsjóði vorið 2019 fyrir nýrri tölvustýrðri klumbruskurðarvél. 

Það er mat dómnefndar að Curio hafi þróað framúrskarandi afurðir og leggi mikla áherslu á áframhaldandi þróun véla sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verðlaununum komið.

Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um er að ræða sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna framúrskarandi þróunarstarfi. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.

Sjá nánar um verðlaunahafa á curio.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica