Evrópumerkið árið 2019

12.7.2019

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og mennta- og menningar­málaráðuneytið veita Evrópumerkið sem viðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumála­námi og tungumálakennslu 

  • Evropumerkid

Evrópumerkið er veitt annað hvert ár og er ráðgert að viðurkenning verði veitt á ráðstefnu Erasmus+ á Íslandi, sem haldin verður þann 11. október nk.

Í ár veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti sérstakan fjárstyrk upp á 300.000 krónur sem skal nýttur til kynningar og þróunar á því verkefni sem hlýtur Evrópumerkið.

Umsóknarfrestur um Evrópumerkið er til 5. september nk. Umsóknum er skilað rafrænt til Rannís. 

Forgangsatriði árið 2019 er aðgengi að tungumálanámi og tungumál fyrir alla (Language Inclusiveness). Umsóknir um önnur verkefni en þau sem taka til ofangreindra forgangsatriða verða einnig tekin til skoðunar.

Nánari upplýsingar um Evrópumerkið ásamt yfirliti yfir íslensk verkefni sem hafa áður hlotið viðurkenningu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica