Umsóknarfrestur um Evrópumerkið 2019 hefur verið framlengdur til 9. september

5.9.2019

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og mennta- og menningarmálaráðuneytið veita Evrópumerkið sem viðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumálanámi og tungumálakennslu. 

  • Evropumerkid

Í ár veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti sérstakan fjárstyrk upp á 300.000 krónur sem skal nýttur til kynningar og þróunar á því verkefni sem hlýtur Evrópumerkið.

Umsóknarfrestur um Evrópumerkið er til 9. september nk. Umsóknum er skilað rafrænt til Rannís á þessari slóð.

Eftirfarandi forgangsatriði verða árið 2019:

Þróa skóla án aðgreiningar og styðja kennara og skólastjóra í að fagna fjölbreytileika í skólastarfi (Developing better and more inclusive schools and supporting teachers and school leaders to embrace diversity)

Sjá nánari lýsingu á viðurkenningunni á heimasíðu Evrópumerkisins.

Umsóknir um önnur verkefni en þau sem taka til ofangreindra forgangsatriða verða einnig tekin til skoðunar.

Evrópumerkið er veitt annað hvort ár og er ráðgert að viðurkenning verði veitt 11. október á degi Erasmus+. Nánari upplýsingar um Evrópumerkið ásamt yfirliti yfir íslensk verkefni sem hafa áður hlotið viðurkenningu má finna á heimasíðu Rannís.

Nánari upplýsingar gefur Þorgerður Eva Björnsdóttir , Rannís, sími 515 5840









Þetta vefsvæði byggir á Eplica