Ferðastyrkir á Arctic Frontiers ráðstefnuna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um ferðastyrki til að sækja Arctic Frontiers ráðstefnuna sem haldin verður í Tromsø 2.-5. febrúar 2026 og tengda norðurslóðaviðburði sem fara fram dagana í kringum ráðstefnuna.
Styrkirnir eru veittir úr Arctic Research and Studies samstarfssjóði Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða.
Í boði eru fimm til sjö styrkir til rannsakenda og sérfræðinga á Íslandi um málefni norðurslóða til þátttöku á Arctic Frontiers ráðstefnunni. Styrkirnir ná yfir ferðakostnað, ráðstefnugjöld og gistikostnað í Tromsø. Hver styrkur getur að hámarki numið 3.500 evrum gegn kvittunum fyrir ofangreindum kostnaði.
Markmið ferðastyrkjanna er í samræmi við tilgang Arctic Research and Studies (grein 5.2 Ferðastyrkir) og eru umsækjendur um ferðastyrki á Arctic Frontiers hvattir til að kynna sér auglýsta sóknarstyrki vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.
Sækja um ferðastyrkUmsóknarfrestur ferðastyrkja á Arctic Frontiers ráðstefnuna er 14. nóvember 2025 klukkan 15:00 að íslenskum tíma (UTC).
Nánari upplýsingar um styrkina veitir Egill Þór Níelsson.

