Frestur umsókna í Vinnustaðanámssjóð framlengdur

19.11.2020

Athygli er vakin á því að frestur til að sækja um í Vinnustaðanámssjóð hefur verið færður frá föstudeginum 20. nóvember til þriðjudagsins 24. nóvember kl. 16:00.

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámsskrá framhaldsskóla.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknarfrestur fyrir árið 2020 hefur verið framlengdur til 24. nóvember kl. 16:00.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson: SENDA PÓST

LESA UM VINNUSTAÐANÁMSSJÓÐ









Þetta vefsvæði byggir á Eplica