Hafa ekki allir gott af Rítalíni?
Vísindakaffi 24. september kl. 20:30
Guðrún Dóra Bjarnadóttir geðlæknir og Gyða Guðmundsdóttir sálfræðingur verða gestir á öðru Vísindakaffinu í aðdraganda Vísindavöku, þriðjudaginn 24. september kl. 20:30-22:00 á Kaffi Laugalæk.
Umræða um misnotkun örvandi lyfseðilsskyldra lyfja hefur aukist á undanförnum árum. Methýlfenídat (MPH) er virka efnið í rítalín, rítalín uno og concerta. Rannsókn á misnotkun MPH á Íslandi hafa leitt í ljós að yfir 10% háskólanema í grunnnámi sem tóku þátt höfðu misnotað þessi lyf til taugaeflingar (e. neuroenhancement) og/eða afþreyingar. Auk þess hefur misnotkun MPH í æð verið algeng á Íslandi og sýndu niðurstöður rannsókna að tæplega 90% þátttakenda hafði notað MPH í æð og kusu að nota það fram yfir önnur efni á borð við kókaín og ópíóða.
Í aðdraganda Vísindavöku Rannís 2019 verður hellt upp á fjögur vísindakaffi á Kaffi Laugalæk og þrjú vísindakaffi á landsbyggðinni, á Ströndum, í Bolungavík og á Akureyri.