Ísland tekur við stjórn Nordplus menntaáætlunarinnar

7.2.2019

Ísland hefur tekið við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar næstu þrjú árin. Rannís mun sjá um rekstur aðalskrifstofunnar fyrir Nordplus áætlunina þann tíma sem Ísland heldur um stjórnartaumana, en Rannís hefur rekið landskrifstofu Nordplus á Íslandi frá 2013.

  • Andres-tekur-vid-keflinu
    Andrés tekur við keflinu af Dananum Henrik Neiiendam Andersen sem hefur verið stjórnandi Nordplus undanfarin ár

Í rekstri aðalskrifstofunnar felst samræming á starfi landskrifstofa á Norðurlöndunum fimm, sem skipta með sér verkum við undirbúning úthlutana, auk starfs sem unnið er af tengiliðum í Eystrasaltsríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandi.

Í kjölfarið hefur Andrés Pétursson verið ráðinn stjórnandi Nordplus og Eva Einarsdóttir kynningarstjóri áætlunarinnar. 

Andrés Pétursson lauk BA prófi í fjölmiðlafræði og sögu frá Simon Fraser University í Vancouver og síðar MA prófi í Evrópufræðum frá London School of Economics. Hann hefur verið starfsmaður Rannís síðan 2013, með víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi og hefur undanfarin ár séð um skólahluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar Evrópusambandsins, á Íslandi. 

Eva er með meistaragráðu í stjórnunar- og viðskiptafræði (MBA) frá HR, gráðu í alþjóðlegri verkefnastjórnun frá Gautaborg og gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Gautaborg. Hún hefur fjölbreytta reynslu af menntamálum, æskulýðs- og íþróttastarfi, af norrænu og evrópsku samstarfi, auk reynslu af kynningarstarfi, skipulagningu viðburða og vefumsjón.

Á hverju ári veitir Nordplus styrki fyrir rúmlega 9 milljónir evra til fjölbreyttra menntaverkefna. Ísland hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi frá upphafi og hafa hátt í fimm þúsund Íslendingar fengið styrki úr þessari áætlun á þeim tíma. Samstarfið er því mjög mikilvægt fyrir íslenskt menntasamfélag og er þetta því jákvætt skref til að auka veg og vanda Nordplus á Íslandi enn frekar.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica