Íslenskukennsla fyrir útlendinga: Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2016

21.12.2015

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur úthlutað 120 milljónum króna í íslenskukennslu fyrir útlendinga fyrir árið 2016.

Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í þjóðskrá*, tækifæri til að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.

Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila sem annast kennsluna fylgja umsókninni.

* Hælisleitendur eru undanþegnir kröfu um skráningu í Þjóðskrá meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum.

Upplýsingar um sjóðinn veitir Jón Svanur Jóhannsson

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica