Kynningar og fundir á vegum Rannís á Vesturlandi og í Vesturbyggð
Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Vesturbyggð heim þann 23. september nk. til að kynna ýmis tækifæri og styrki sem bjóðast í alþjóðasamstarfi.
Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana:
- Erasmus+, áætun ESB fyrir öll skólastig, æskulýðsmál og íþróttir
- Creative Europe, kvikmynda- og menningaráætlun ESB
- Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar
- Uppbyggingarsjóð EES
Rannís hvetur sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, íþróttafélög, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og mæta. Starfsfólk okkar verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.
23. september
- Kl. 12:00-13:00 - Opinn kynningarfundur á Bíldudal, á Vegamótum. Súpa í boði.
- Kl. 16:30-18:00 - Opinn kynningarfundur í Félagsheimilinu á Patreksfirði. Kaffi og með því.
Það væri frábært ef þið skráið ykkar, til að áætla magn veitinga.
Þessar ferðir eru skipulagðar í samstarfi við sveitarfélagið Vesturbyggð .
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir um fundinn til Evu Einarsdóttur kynningarfulltrúa: eva.einarsdottir@rannis.is, sími: 691 3351.