Kynningarfundir á vegum IASC og Rannís

3.11.2022

Verkefnastyrkir alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) árið 2023 og kynning á fjórðu alþjóðlegu ráðstefnunni um skipulagningu norðurslóðarannsókna (ICARP IV)

Á fundunum verða kynntir verkefnastyrkir á vegum alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) árið 2023 og hvernig þú/þín stofnun getið tekið þátt í að móta áherslur norðurslóðarannsókna næsta áratuginn í aðdraganda fjórðu alþjóðlegu ráðstefnunnar um skipulagningu norðurslóðarannsókna (ICARP IV).

Á fundunum munu Gerlis Fugmann, framkvæmdastjóri skrifstofu IASC, og Egill Þór Níelsson, IASC fulltrúi Íslands og sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, kynna:

  • Verkefnastyrki IASC 2023 fyrir norðurslóðaverkefni – umsóknarferlið og -fresti,
  • Vísindaviku norðurslóða 2023
  • ICARP IV ferlið – tækifæri allra hagaðila að móta rannsóknaáherslur
  • Norðurslóðarannsóknir á Íslandi og alþjóðlegt samstarf


Fundirnir verða tveir, annars vegar á Akureyri og í Reykjavík.

Fundirnir fara fram á ensku

Öll velkomin

Kaffiveitingar í boði. 

Iasc-logo                                                                                Icarp_4









Þetta vefsvæði byggir á Eplica