Kynningarfundur á Akureyri um Tækniþróunarsjóð, skattfrádrátt og Horizon 2020

10.11.2015

Miðvikudaginn 18.nóvember nk. kl. 13:00 stendur Rannís fyrir kynningu í Háskólanum á Akureyri, á styrkjum sem stofnunin hefur umsýslu með. Annarsvegar verða styrkir Tækniþróunarsjóðs kynntir sem og skattfrádráttur til fyrirtækja vegna rannsókna- og þróunarverkefna. Hinsvegar verður boðið uppá almenna kynningu á Horizon2020 sem er rannsóknaráætlun Evrópusambandsins.

Fundurinn verður haldinn 18. nóvember, kl.  13:00 – 14:30 í Háskólanum á Akureyri, stofu N 2014 að Sólborg.

Dagskrá

  • Almenn kynning á Horizon2020, rannsóknaráætlun Evrópusambandsins. - Kristmundur Þór Ólafsson, sérfræðingur á alþjóðasviði. Sækja kynningu
  • Kynning á styrkjum Tækniþróunarsjóðs og skattfrádrætti til fyrirtækja vegna rannsókna- og þróunarverkefna. - Björn Víkingur Ágústsson, sérfræðingur á rannsókna– og nýsköpunarviði. Sækja kynningu

Fundurinn er öllum opinn og eru áhugasamir hvattir til að mæta.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica