Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina

23.10.2017

Kynningarfundur um Nordplus norrænu menntaáætlunina verður haldinn 1. nóvember í Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur hjá Háskóla Íslands, kl. 15:30 – 17:30. Farið verður yfir Nordplus áætlunina og þær breytingar sem verða á nýrri áætlun fyrir árin 2018-2022.

Nordplus veitir styrki til allra skólastiga og allir sem starfa við menntamál, innan formlegra menntastofnana eða utan þeirra, geta sótt um í Nordplus, m.a er hægt að sækja um bekkjarheimsóknir, kennaraskipti, norræn tungumálaverkefni og samstarfsverkefni á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Sjá nánar.

Næsti umsóknarfrestur er 1. febrúar 2018.

Boðið verður upp á léttar veitingar og hægt verður að fá persónulega ráðgjöf varðandi umsóknir.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku









Þetta vefsvæði byggir á Eplica