Verkefnið Hjólaleiðir á Íslandi hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2014

13.2.2014

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2014 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 13. febrúar. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Hjólaleiðir á Íslandi og var það unnið af Evu Dís Þórðardóttur úr Háskólanum í Reykjavík og Gisla Rafni Guðmundssyni nemanda í Háskólanum í Lundi, Svíþjóð. Leiðbeinendur þeirra í verkefninu var Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir og Ólafur Árnason hjá Eflu, verkfræðistofu.

Hjólaleiðir á Íslandi fólst í því að vega og meta hjólaleiðir á Íslandi út frá kröfum EuroVelo verkefnisins með það að markmiði að koma einni leið á Íslandi inn á kort EuroVelo. EuroVelo heldur utan um meginkerfi reiðhjólaleiða í Evrópu og er ætlað að stuðla að sjálfbærri ferðamennsku. Á korti EuroVelo eru í dag 14 leiðir, sem eru samtals um 45.000 km langar. Skráning á leið um Ísland inn á kort samtakanna er mikilvægur þáttur í að vekja athygli á Íslandi sem viðkomustað fyrir hjólaferðamenn og auka tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu hér á landi. Jafnframt var hér safnað saman á einn stað mikilvægum upplýsingum um leiðirnar fyrir ferðaþjónustuaðila og umsjónarmenn EuroVelo hér á landi.  Hluti af verkefninu fólst í að koma á samstarfi aðila innan Íslands sem tækju að sér að fóstra verkefnið til framtíðar. Ferðamálstofa ásamt Landssamtökum hjólreiðamanna og öðrum hagsmunaaðilum hafa nú sent umsókn til EuroVelo fyrir hönd Íslands þar sem gögn nýsköpunar-verkefnisins eru nýtt. Ferðamálastofa hefur tekið að sér að fóstra verkefnið fyrir Íslands hönd.

Verðlaunagripurinn í ár

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í nítjánda sinn. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir verðlaunin. Samtök iðnaðarins gefa verðlaunin í ár, en verðlaunagripirnir eru ullarteppi, Páfagaukurinn og Hrafninn, eftir Vík Prjónsdóttur, sem er eitt af athyglisverðustu hönnunarfyrirtækjum samtímans.  Vík Prjónsdóttir er í eigu hönnuðanna Brynhildar Pálsdóttur, Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Þuríðar Rós Sigurþórsdóttur. Allir sem tilnefndir eru og hafa hlotið þá viðurkenningu að verkefnið þeirra hefur verið valið sem öndvegisverkefni sjóðsins fengu teikningar eftir myndlistakonuna Sunnu Ben, sem er sjálfstætt starfandi listakona í Reykjavík. Einnig fá allir tilnefndir viðurkenningarskjal undirritað af forsetanum.

Allt um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands hér

Allt um Nýsköpunarsjóð námsmanna hér









Þetta vefsvæði byggir á Eplica