Styrkir úr tónlistarsjóði 2014

5.3.2014

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júlí 2014 til janúar 2015.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.

Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.
Allar upplýsingar um sjóðinn, reglur og umóknir hér.

Umsóknarfrestur rennur út fimmtudaginn 15. maí 2014.

Næsti umsóknarfrestur verður í nóvember 2014 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2015. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga.

Umsýsla tónlistarsjóðs færðist  frá  mennta- og menningarmálaráðuneyti til Rannís 2013.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica