Auglýst er eftir umsóknum um námsorlof á framhaldsskólastigi
Umsóknarfrestur er til 1. október 2014 fyrir skólaárið 2015-2016
Námsorlof framhaldsskólakennara, náms-og starfsráðgjafa og stjórnenda framhaldsskóla
Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2015-2016 þurfa að berast Rannís eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.