Lýst er eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði

8.9.2014

Umsóknarfrestur er til 1. október.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga

Umsóknarfrestur er til 1. október, kl. 17:00.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar









Þetta vefsvæði byggir á Eplica