Styrkir úr Vinnustaðanámssjóði
Lýst er eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði. Umsóknarfrestur er til 3. nóvember nk.
Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.
Upplýsingar um sjóðinn má finna hér. Athugið að umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Hrafnkelsdóttir á skrifstofu Rannís.