Evrópusamvinna á Háskólatorgi 6. nóvember

31.10.2014

Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 6. nóvember 2014 kl. 15-17.

Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra og norrænna samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á sviði menntunar og menningar, rannsókna og vísinda, æskulýðsstarfs og íþrótta, nýsköpunar og atvinnulífs. 

Evrópusamvinna.is

Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Vefnum er ætlað að vera fyrsti áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu.

 Evrópusamstarf fyrir alla

Íslendingar hafa aðgang að fjölda samstarfsáætlana í gegnum EES samninginn og hafa verið mjög virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Einnig á Ísland aðild að norrænu samstarfi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Hægt er að sækja styrki og stuðning til verkefna sem tengjast flestum sviðum þjóðlífsins og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar og lista, vísinda og nýsköpunar, heilbrigðis og almannavarna, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs.

Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.

Allir velkomnir!









Þetta vefsvæði byggir á Eplica