Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna

Umsóknarfrestur 15. janúar 2015, kl. 16:00

2.12.2014

Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.

Forgangsatriði Þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2015 er efni sem stuðlar að aukinni almennri hæfni í stærðfræði og tölfræði og tengir þessi fög við daglegt líf.

Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.

Opnað verður fyrir umsóknir 8. desember 2014 og er hægt að skila umsókn til 15. janúar 2015 kl. 16.00.

Umsókn skal skilað á rafrænu formi.  Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica