Íslenskukennsla fyrir útlendinga

Umsóknarfrestur til 5. janúar 2015

2.12.2014

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá, tækifæri á að öðlast  nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.


Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is  og skal skilað á rafrænu formi.

Upplýsingar um sjóðinn veitir Helga Rún Viktorsdóttir
helga.viktorsdottir@rannis.is

Sími: 515-5820









Þetta vefsvæði byggir á Eplica