Mennta- og menningarsvið flytur úr Tæknigarði í Borgartún 30
Fimmtudaginn 18. desember flytur mennta- og menningarsvið Rannís úr Tæknigarði HÍ í Borgartún 30, þ.m.t. landskrifstofa Erasmus+, landskrifstofa Nordplus og Upplýsingastofa um nám erlendis.
Á meðan á flutningum stendur er viðskiptavinum bent á að nota tölvupóst og almennan síma Rannís, 515 5800. Við vonum að flutningarnir valdi sem minnstum óþægindum hjá viðskiptavinum okkar og hlökkum til að bjóða ykkur velkomin á nýjan stað.
Vorið 2015 mun síðan öll starfsemi Rannís flytjast í Borgartún 30.