Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna lýsir eftir umsóknum
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna. Umsóknarfrestur er til 29. apríl um starfslaun úr sjóðnum, sem veitt verða frá 1. júlí 2015.
Hlutverk sjóðsins er að styðja við starfsemi fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein. Rétt til að sækja uym laun úr sjóðnum hafa höfundar fræðirita, fræðigreina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku.
Upplýsingar og reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Starfslaunasjóðsins hér. Þar er einnig aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi Rannís.
Hulda Proppé hjá Rannís veitir nánari upplýsingar um sjóðinn.