Tónlistarsjóður auglýsir eftir styrkumsóknum

30.3.2015

Tónlistarsjóður auglýsir eftir styrkumsóknum til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 2015. Umsóknarfrestur er til 15. maí kl. 17:00

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Næst verður auglýst eftir umsóknum 15. nóvember 2015 vegna verkefna á fyrri hluta ársins 2016.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.

Sjá nánar 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica