Auglýst eftir umsóknum um styrki úr vinnustaðanámssjóði

30.3.2015

Næsti umsóknarfrestur er til 11. maí kl. 17:00. Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar









Þetta vefsvæði byggir á Eplica