Auglýst eftir umsóknum um Evrópumerkið árið 2015

22.5.2015

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og mennta- og menningarmálaráðuneytið veita Evrópumerkið sem viðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumálanámi og tungumálakennslu. Evrópumerkið er veitt annað hvert ár og er ráðgert að viðurkenning verði veitt á Degi tungumála 26. september 2015. 

Í ár veitir mennta- og menningarmálaráðuneyti sérstakan fjárstyrk upp á 300.000 krónur sem skal nýttur til kynningar og þróunar á því verkefni sem hlýtur Evrópumerkið. Umsóknarfrestur um Evrópumerkið er til 1. júní nk.

Eftirfarandi forgangsatriði verða árið 2015:

  1. Tungumál í margbreytilegu samfélagi (tungumál og félagsleg aðild)
  2. Tungumál og íþróttir

Sjá nánari lýsingu á forgangsatriðum.

Umsóknir um önnur verkefni en þau sem taka til ofangreindra forgangsatriða verða einnig tekin til skoðunar.

Nánari upplýsingar um Evrópumerkið og hvernig sótt er um, ásamt yfirliti yfir íslensk verkefni sem hafa áður hlotið viðurkenningu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica