Vísindasamstarf Íslands og Frakklands

29.6.2015

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Jules Verne sem styrkir vísinda- og tæknisamstarf milli Íslands og Frakklands. Umsóknarfrestur er til 18. september 2015.

Veittir eru styrkir til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðila á grundvelli Jules Verne samstarfssamningsins. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís hefur umsjón með því hér á landi.

Umsóknarfrestur er 18. september 2015.  

Veittir eru styrkir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2016-2017.

Tilgangurinn með samstarfinu er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.

Vísindamenn á öllum sviðum grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk.

Í ár verður lögð áhersla  á verkefni á sviði jarðhitarannsókna, rannsókna á norðurslóðum, jarðvísinda og lífvísinda, einkum læknavísindi.

Stofnanir sem eiga í samstarfi þurfa báðar að leggja inn umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón með Jules Verne í hvoru landi fyrir sig. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna hér. Umsóknir skal senda inn rafrænt á netfangið elisabet.andresdottir@rannis.is.

Umsjón með Jules Verne hjá Rannís hefur Elísabet M. Andrésdóttir.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica