Meniga hlýtur Nýsköpunar­verðlaun Íslands 2014

10.4.2014

Fyrirtækið Meniga hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2014 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi 10. apríl, en Meniga er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem er markaðsleiðandi í Evrópu á sviði heimilisfjármálahugbúnaðar, með sautján viðskiptavini í fjórtán löndum.

  • Á myndinni eru frá vinstri: Ragnheiður Elín Árandóttir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Meniga, Kristján Freyr Kristjánsson, yfirmaður íslenskrar starfsemi og Sveinn Waage markaðsstjóri.

 Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Meniga, veitti verðlaununum viðtöku. Á Nýsköpunarþingi var fjallað um vaxtarferli fyrirtækja og sóttu rúmlega 200 manns þingið, sem haldið var á Grand hótel Reykjavík. Meniga rekur heimilisfjármálavefinn meniga.is sem hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur hér á landi síðan honum var hleypt af stokkunum í ársbyrjun 2010, en í dag er hann notaður af um 20% íslenskra heimila. Vefurinn er rekinn í samstarfi við alla stóru bankana þrjá. Meniga er í dag að vinna að ýmsum spennandi nýjungum í þjónustu sinni á Íslandi sem munu verða kynntar næstu misseri, en þær miða allar að því að hjálpa fólki að spara peninga með markvissum hætti.

Fyrirtækið hefur vaxið hratt frá stofnun í mars 2009 og er nú með starfsemi í Reykjavík, Stokkhólmi og London, þar sem Meniga opnaði nýlega skrifstofu. Starfsmenn Meniga eru nú um 80, og þar af eru 60 á Íslandi.  Þýskaland, Spánn og Suður-Afríka eru stærstu markaðir Meniga.  Hugbúnaður Meniga nær til, eða mun fljótlega ná til, um fimmtán milljóna netbankanotenda í fjórtán löndum. Meniga hefur hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar fyrir sinn hugbúnað á undanförnum árum og nú hefur fyrirtækinu verið veitt Nýsköpunarverðlaun Íslands.

Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.  Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica