Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar - umsóknarfrestur til 20. maí

25.4.2014

Stjórn Rannsóknarsjóðs Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar auglýsir styrki úr sjóðnum fyrir 2014.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni. Stjórn sjóðsins metur umsóknir eftir gæðum rannsóknarverkefna og tengsl þeirra við markmið sjóðsins, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu til að sinna verkefninu. Hámarksstyrkupphæð fyrir árið 2014 er 1.000.000 kr.

Umsóknarfrestur er til 20. maí 2014, kl. 16:00.

Umsóknir eru rafrænar og sótt eru um í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Upplýsingar um sjóðinn hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica