Nýsköpunartorg 23.-24. maí
Nýsköpunartorg verður haldið í Háskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24 maí. Um er að ræða fagráðstefnu um starfsumhverfi og uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja auk sýningar þar sem fyrirtæki og stofnanir kynna árangur í nýsköpun.
Nýsköpunartorg er haldið í tengslum við 20 ára afmæli Samtaka iðnaðarins og 10 ára afmæli Tækniþróunarsjóðs. Af þessu tilefni munu nærri 60 fyrirtæki, sem hlotið hafa styrk út Tækniþróunarsjóði, kynna sig og starfsemi sína. Nánar um Nýsköpunartorg hér.
Fagráðstefna
Föstudaginn 23. maí kl. 8.45-17.00
Fagráðstefnan hefst með sameiginlegri dagskrá í Sólinni en síðan verða haldnar málstofur í sex stofum háskólans. Annars vegar eru þrjár línur um uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja þar sem fyrirtækjum er skipt í deildir eftir þroskastigi og hins vegar málstofur um tengda stoðþjónustu s.s. vörumerki, einkaleyfi og staðla. Gestir ráðstefnunnar geta valið sér þá fyrirlestra sem mestan áhuga vekja.
Nánari upplýsingar og skráning á síðu Samtaka Iðnaðarins.
Spennandi Nýsköpunartorg fyrir alla fjölskylduna
Laugardaginn 24. maí kl. 11.00-17.00
Öllum sem áhuga hafa á nýsköpun og tækni er boðið á Nýsköpunartorgið. Um 70 nýsköpunarfyrirtæki og stofnanir kynna vörur og þjónustu en að auki verða margvíslegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna, m.a.
- Kynning fyrirtækja um tækifærin í tækni
- Pollapönk tekur lagið
- Kubbað með Mindstorm
- Spilað með Spilavinum
- Þrjú vinningslið GameCreator kynna nýja tölvuleiki
- Mælingar á ástandi húðarinnar í boði EGF húðvara
- Prófaðu að hjóla með heimsins léttasta hjólagaffli
- Hvernig verður rafmagn til?
- Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
- Ekta eða fake? - Falsaðar vörur til sýnis
- Taktu þátt í nýsköpun á orðavegg Ský þar sem leitað er eftir íslenskun á enskum tölvuhugtökum
- og fleira skemmtilegt...
Frítt er inn á Nýsköpunatorgið
Samtök iðnaðarins, Rannís, HR, Einkaleyfastofa og Ský og fleiri aðilar sem tengjast nýsköpunarumhverfinu á Íslandi standa fyrir Nýsköpunartorginu.