Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB formlega staðfest

20.5.2014

Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB til næstu sjö ára, hefur nú verið formlega staðfest.

 Rannís hefur umsjón með Horizon 2020 sem styrkir rannsóknir og nýsköpun, menntahluta Erasmus+ sem styrkir verkefni á sviði menntunar og þjálfunar á öllum stigum og Creative Europe sem styður við kvikmyndagerð og menningu.  Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar í dag gerðist Ísland formlegur þátttakandi í nýjum samstarfsáætlunum ESB; Erasmus+, Horizon2020 og Creative Europe. Í tilefni þess skellti Ásgerður Kjartansdóttir, sendiráðunautur í Brussel, í eitt blogg um þessar áætlanir.

Sjá einnig frétt á heimasíðu EFTA (á ensku).









Þetta vefsvæði byggir á Eplica