Opið fyrir umsóknir um styrki úr Jafnréttissjóði Íslands

24.2.2020

Rannís lýsir eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði Íslands. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur til 3. apríl 2020, kl. 16:00.

  • Jafnréttissjóður

Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður árið 2015 í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni og rannsóknir sem auka jafnrétti kynjanna í samræmi við þingsályktanir um Jafnréttissjóð Íslands.

Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljónir króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020. Úthlutað er úr sjóðnum 19. júní ár hvert.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Nánari upplýsingar og reglur um úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands, auk aðgangs að umsóknarkerfi Rannís má finna á síðu Jafnréttissjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica