Opið fyrir umsóknir um styrki úr Tónlistarsjóði

1.10.2018

Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember 2018 kl. 16.00. 

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar – 30. júní 2019. 
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. 

Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember 2018 kl. 16.00. Ekki er hægt að senda inn umsóknir eftir þann tíma.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu Tónlistarsjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica