Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprotasjóð 2024

2.1.2024

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2024 kl. 15:00. Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við menntastefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.

Sprotasjóður hefur opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir skólaárið 2024-2025. Sjóðurinn styrkir þróunarverkefni í leik-, grunn- og framhaldsskólum skv. reglugerð hans nr. 242/2009. Markmið sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.

Árið 2024 eru áherslusvið sjóðsins:

  • Farsæld barna og ungmenna, með áherslu á umburðarlyndi, fjölbreytileika og inngildingu nemenda.
  • Teymiskennsla og samstarf.

Einnig er hægt að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.

Á hverju ári styrkir sjóðurinn tugi verkefna alls staðar af landinu sem stuðla að þróun og nýsköpun í skólastarfi. Árið 2023 veitti Sprotasjóður 56,8 milljónir króna til 25 verkefna.

Rannís sér um umsýslu Sprotasjóðs fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Hér er hægt að lesa meira um Sprotasjóð. Fyrir nánari upplýsingar eða ef spurningar vakna má hafa samband við Óskar (515 5839) eða Skúla (515 5843) eða senda fyrirspurn á sprotasjodur@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica