Ráðstefnutækifæri: eTwinning ráðstefna fyrir skólastjórnendur
Dagana 6.–8. nóvember 2025 verður haldin eTwinning ráðstefna fyrir skólastjórnendur í Istanbúl, Tyrklandi. Ráðstefnan fer fram á Intercontinental Istanbul.
Um ráðstefnuna
Ráðstefnan er ætluð skólastjórnendum sem þegar hafa reynslu af eTwinning og vilja efla hlutverk sitt sem leiðtogar innan alþjóðlegs skólasamstarfs. Á dagskrá eru fyrirlestrar, vinnustofur og tækifæri til tengslamyndunar sem miða að því að:
-
styrkja leiðtogahlutverk skólastjóra í eTwinning,
-
efla getu skólastjórnenda til að styðja kennara í sínum skólum,
-
byggja upp varanlegt alþjóðlegt samstarf.
Hagnýtar upplýsingar
-
Hvenær? 6.–8. nóvember 2025
-
Hvar? Intercontinental Istanbul, Istanbúl, Tyrkland
-
Fyrir hverja? Skólastjórnendur með reynslu af eTwinning
-
Tungumál: Enska
-
Fjöldi frá Íslandi: Einn skólastjóri
-
Ferðastyrkur: eTwinning landskrifstofan greiðir flug, gistingu og akstur til/frá flugvelli.
-
Skilyrði: Að kynna eTwinning og ráðstefnuna í sínum skóla að lokinni ferð og skila stuttri ferðasögu til landskrifstofunnar.
ATH. Umsóknarfrestur er stuttur, eða aðeins til 15. september 2025.