Rannís auglýsir eftir umsóknum í Íþróttasjóð

20.8.2020

Íþróttsjóður er fyrir íþrótta- og ungmennafélög og þá sem starfa að útbreiðslu- og fræðsluverkefnum og rannsóknum á sviði íþrótta. Umsóknarfrestur er til 1. október 2020, kl. 16.00.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna, sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að jafnrétti í íþróttum
  • Íþróttarannsókna.
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Vakin er athygli á því að sami umsækjandi getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarflokki.

Nánari upplýsingar, umsóknareyðublöð og leiðbeiningar eru að finna á vef Íþróttasjóðs.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir klukkan 16:00 þann 1. október 2020.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson









Þetta vefsvæði byggir á Eplica