Rannís auglýsir eftir umsóknum í Nýsköpunarsjóð námsmanna

6.1.2017

Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2017 kl. 16:00.

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

  • Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til
    að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja
  • Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi
    og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns
    undir leiðsögn ábyrgðarmanna
  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna
  • Úthlutun mun liggja fyrir í mars/apríl 2017

Hverjir geta sótt um?

  • Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
  • Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema
    í sumarvinnu við rannsóknir

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís .
Þar er jafnframt að finna reglur og leiðbeiningar varðandi sjóðinn.

Nánari upplýsingar á síðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica