Rannís auglýsir eftir umsóknum í Vinnustaðanámssjóð

20.6.2017

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnustaðanámssjóð og er umsóknarfrestur til þriðjudagsins 14. nóvember 2017, kl. 16:00.

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámsskrá framhaldsskóla.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Stjórn Vinnustaðanámssjóðs hefur ákveðið að styrkupphæð á hvern nema í vinnustaðanámi sé 12.000 krónur á viku og er það óbreytt frá árinu áður. Umsóknir fyrir hvern og einn nema getur náð til alls almanaksársins 2017 en mest er þó hægt að sækja um 24 vikur í vinnustaðanámi fyrir hvern nema á hvorum árshelmingi fyrir sig, samtals mest 48 vikur yfir árið.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís .

Nánar um sjóðinn, umsóknarferli og tengiliði.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica